Tuesday, June 14, 2011

Rósargarður

Eftir fund um sumarsýninguna í skólanum í morgun eyddi ég deginum í rósargarðinum í sumarsælu  :)











- Rósa Þórunn -

Wednesday, May 18, 2011

Fyrr og nú

Um páskana fann ég nokkrar gamlar myndir niðri í kjallara á Ásvallagötunni sem gaman var að sjá. 
Svona leit garðurinn út séð út um eldhúsgluggann eitthvað eftir 1950 og svona lítur hann út í dag!

Annars er ég að klára allskonar verkefni þessa dagana og hef því ekki mikinn lausan tíma,.. 2 vikur í sumarfrí og sól  :)







- Rósa Þórunn -

Friday, April 29, 2011

Glaður prestur :)




- Rósa Þórunn -

Brúðkaupið



Jæja þá er brúðkaupið yfirstaðið... ég vaknaði að sjálfsögðu snemma í morgun til að fylgjast með 
en reyndar bara í sjónvarpinu, það hefði verið gaman að sjá þau en allur dagurinn hefði farið í það ævintýri... 
Mér fannst þetta bara allt rosalega sætt eitthvað og kjóllinn svo fallegur  :)  
Skemmtilegast fannst mér þó þegar þau tvö keyrðu saman í burtu á Aston Martin seinna 
í dag og það var sko algjörlega óvænt!














- Rósa Þórunn -


Thursday, April 21, 2011

Sumardagurinn fyrsti

Verkefni dagsins var að rífa veggfóður og gömul panil af baðherberginu.
Fékk góða og nauðsynlega hjálp frá minni frábæru fjölskyldu, 
það er sko ekkert grín að ná þessu af veggjunum....





- Rósa Þórunn -

Monday, April 11, 2011

Frænkur í London

 Ég fékk þrjár góðar frænkur í heimsókn um helgina. 
Það var mikið fjör, mikið skoðað og mikið labbað...












- Rósa Þórunn -

Saturday, April 2, 2011

Laugardagsmarkaður í Crouch End

Ég fór á gamlar slóðir í dag því það var nefnilega haldinn nýr markaður í Crouch End, en þar bjó ég mitt fyrsta ár í London. Markaðurinn, sem heitir North London Vintage Market, var mjög skemmtilegur og fullur af allskonar glingri og gersemum... ég verslaði nú reynar ekki mikið en nældi mér þó í tvö virkilega fín gömul jólakort sem mig langar að gera eitthvað við seinna  :)









- Rósa Þórunn -

Saturday, March 26, 2011

Sjöan - Arne Jacobsen

Mér finnst svolítið gaman að sjá hvernig hlutirnir verða til...



- Rósa Þórunn -

Sliding House

Ég fór á fyrirlestur í vikunni þar sem fjallað var um "Sliding House" frá dRMM sem var byggt 2009
Þetta er hús sem kemur á óvart!




- Rósa Þórunn -

Wednesday, March 23, 2011

Ásvallagatan

Í dag varð ég officially eigandi að minni fyrstu íbúð
Íbúðin er á Ásvallagötunni og vænst þykir mér um að að þetta er íbúðin sem afi Jón ólst upp í
Hún er svo sannarlega smá fjölskyldudýrgripur  :)



- Rósa Þórunn -